24.3.2008 | 13:23
Fórum austur yfir páskana
Fjölskyldan og ég fórum austur yfir páskana og náði ég eini köfun í Fáskrúðsfirðinum. Það var frekar köld köfun um 2° og svo sem ekki mikið að sjá. Nokkuð af trjónukrabba, beitukóng og hveljur eins og sést á myndinni. Er en að finna út hvernig er best að nota myndavélina. bæti inn fleiri myndum seina úr ferðinni t.d. af öllum hreindýrunum sem við sáum. Verst að ég náði ekki mynd af hegranum líka.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.